Woohoo guess who's back? ^^, It's me! Birna D. a.k.a. Dr.
Spank-Me-Hard (þakka Lindu fyrir þetta viðurnefni
)
Über mikið er búið að gerast á seinasta einum og hálfum mánuði
sem ég er búin að vera í pásu:
-Byrjaði í skólanum aftur
-Er í átaki
-Fór að horfa á anime þætti sem kallast Bleach, les einnig manga
bækurnar um það
-Fékk nýjan herbergisfélaga, a.k.a. Ásthildur, kolbilaði bleikhærði
vopnfirðski ísfirðingurinn.
-Það kviknaði í tölvunni minni, borðtölvunni minni til þess að vera
nákvæmari.
-Hætt var við að sýna "Stígvélaða Köttinn" af LVMA, og núna á að
gera nýtt leikrit sem á að kallast "Fullkomið Bull" eða eitthvað
þannig álíka.
-Ökukennarinn minn algjörlega hundsar mig, er bara búin að fara í 4
tíma hjá honum.
-Er komin með "Lifetime Goal" sem er að komast að því hvað
Frímúrarar gera ^^,
-Ég horfi varla lengur á sjónvarp! ("gosh" hugsa sumir)
-Ég fór á áramótaball um jólin. (Ég-á-balli? naaahhh ^^, en ég fór
samt)
-Núna akkurat í mómentinu er ég að hlusta á Japanskt lag! ROCK ON!
Samt ekkert neitt hommaleg J-Pop tónlist *hrollur*
Jæja það er söngvakeppnin hjá VMA í kvöld og ég er að pæla í því
að skella mér þangað og sjá þetta, meira að segja keppir Höskuldur!
ROFLMAO! Yes I'm evil and I know it!
Ég er núna á morgun að fara að fórna "dýrmætum" *sarcasm* tíma í
ensku hjá Ghasoub (minnir að nafn hans er skrifað svona), til þess
að fara vestur á firði til Flateyrar, þar sem það er verið að fara
að jarða hana langömmu sem var orðin 94 ára gömul (minnir mig), þar
sem hún var að deyja núna á þar seinasta mánudag minnir mig, en ég
er ekki bara að fara vestur í jarðaför ^^, aumingja flateyringarnir
munu sitja uppi með mig í 10 daga þar sem ég ætla ekki að láta
pabba eiða djöfulsins magni af pening þannig að ég myndi fljúga
fram og til baka á milli Akureyrar og Ísafjarðar þar sem helgin
eftir þessa er löng helgi! *SQUEE* Þannig að ég mun missa af viku
úr skólanum, eða reyndar bara 4 daga þar sem það er frí á
föstudeginum.
-Er í átaki
Jamm eins og ég sagði áðan þá er ég í svona "átaki", ég og
herbergisfélaginn minn hún Ásthildur ákváðum að fara í átak, og í
því átaki eigum við að labba niður í Penna, koma við í nördahorninu
úr Nexus og "reynt" að labba uppeftir! *hóst-hóst* Við skulum bara
segja að það er enginn kökubiti að labba hingað uppeftir ef maður
er letingi!
-Fór að horfa á anime þætti sem kallast Bleach, les
einnig manga bækurnar um það.
Argh váá þetta eru OF dásamlegir þættir! (fyrir þá sem vita ekki
hvað anime/manga er þá eru það svona japanskar
teiknimyndasögur/þættir), ég ætla samt ekki að gerast svo nerdish
og þylja upp allan helvítis söguþráðinn þar sem það eru nú komnir
115 þættir! Var að dl þætti númer 115 núna *squee*, það verður
þvílík nörda samkoma á eftir :'D mætti halda að þessir þættir væru
of heilagir r sum, neeehh ég segi svona, þetta er samt snilld.
-Fékk nýjan herbergisfélaga, a.k.a. Ásthildur, kolbilaði
bleikhærði vopnfirðski ísfirðingurinn.
Hmmm ég held að ég þarf ekki að segja mikið hér vegna þess að
titillinn segir allt.
-Það kviknaði í tölvunni minni, borðtölvunni minni til
þess að vera nákvæmari.
/cry, /sob, yup I'm a WoW (World of WarCraft) nerd....En já
tölvan mín, :'C allt mitt heilaga drasl er í henni og þurfti hún
ekki að kveikja í sér! Var að taka ljósmyndir og setti síðan kortið
í vélina og allt í einu kom alveg djöfulsins brunafíla! Reif
auðvitað tölvuna alveg úr sambandi og hennti henni út í glugga, og
þar er hún enn...
-Hætt var við að sýna "Stígvélaða Köttinn" af LVMA, og
núna á að gera nýtt leikrit sem á að kallast "Fullkomið Bull" eða
eitthvað þannig álíka.
Yup, titillinn segir það, ég er ekki lengur "The Gay Wizard of
Oz" eða réttarasagt Galdrakarlinn Glúmur úr Stígvélaða Kettinum ^^,
vegna þess að það hættu svo margir og allir mest óæfðir.
-Ökukennarinn minn algjörlega hundsar mig, er bara búin að
fara í 4 tíma hjá honum.
Hmmm já *hóst-hóst* that's HIS problem....
-Er komin með "Lifetime Goal" sem er að komast að því hvað
Frímúrarar gera ^^,
Ég ÆTLA að komast að því hvað þessu mörgæsaklæddu menn gera! Nóg
um það, og passaðu þig pabbi! Ég ætla að komast að því! ^^,
-Ég horfi varla lengur á sjónvarp! ("gosh" hugsa
sumir)
Hmmm já það er eiginlega satt, einu skiptin sem ég horfi á
sjónvarp er þegar 24 er í sjónvarpinu ^^,
-Ég fór á áramótaball um jólin. (Ég-á-balli? naaahhh ^^, en
ég fór samt)
Já *hóst-hóst* þetta var mjög spes ^^, ég ætlaði ekkert að fara
en svo sannfærði Sigrún mig um að fara og fékk far með henni og
Steinunni.
-Núna akkurat í mómentinu er ég að hlusta á Japanskt lag!
ROCK ON! Samt ekkert neitt hommaleg J-Pop tónlist
*hrollur*
Já haha *flaut* no comment!
Eníveis.......this was my Ultimate Comback Blog!
-Birna D.
(BlogCentral has gotten WAY too complicated -_-"
)